Fara í efni
Bóka tíma

Forsíða / Sagan okkar

Sagan á bakvið Kyrrð

Kyrrð varð til af ástríðu fyrir fólki og vellíðan

Setustofan í Kyrrð heilsusetri

Á bak við Kyrrð stöndum við, Katrín og Lára, tvær konur sem deila þeirri sýn að vellíðan snúist um meira en líkamlega heilsu eina og sér.

Við vitum að lífið gengur ekki alltaf eftir áætlun. Stundum stöndum við frammi fyrir áskorunum sem reyna á bæði líkama og sál. Við vitum líka hversu dýrmætt það getur verið að finna fyrir skilningi, hlýju og því að einhver gefi sér tíma til að hlusta.

Okkur langaði að skapa stað þar sem fólk upplifir einmitt þetta.

Stað þar sem fagmennska og mannleg hlýja fara saman. Þar sem þú færð að koma nákvæmlega eins og þú ert og þar sem ólíkar leiðir að vellíðan fá að njóta sín.

Í Kyrrð höfum við safnað saman fjölbreyttum hópi meðferðaraðila sem deila áhuga okkar á heildrænni nálgun og persónulegri þjónustu.

Okkar ósk er að þegar þú stígur inn um dyrnar hjá okkur finnir þú strax fyrir hlýju og ró. Hér getur þú lagt áhyggjur dagsins til hliðar um stund, slakað á og einfaldlega verið þú.

Kyrrð er okkar hjartans mál og við vonum að þú finnir það í hvert sinn sem þú heimsækir okkur.

Með hlýju,
Katrín og Lára

Eigendur og stofnendur Kyrrðar heilsuseturs