Forsíða / Meðferðaraðilar / Katrín Kristófers
Katrín Kristófers
Advanced höfuðbeina- og spjaldhryggjarmeðferðaraðili, tíðnitæknir og ICC-kennari hjá Rayonex Foundation
Ég hef einlægan áhuga á heilsu, vellíðan og því hvernig líkami, hugur og sál vinna saman.
Í gegnum eigin lífsreynslu hef ég öðlast djúpan skilning á því hversu krefjandi það getur verið að glíma við langvarandi vanlíðan, verki og þreytu. Sú reynsla hefur kennt mér hversu mikilvægt það er að fá að mæta skilningi, hlýju og virðingu, og að einhver gefi sér tíma til að hlusta.
Í starfi mínu legg ég áherslu á heildræna nálgun og að mæta hverri manneskju þar sem hún er stödd. Ég trúi því að við séum öll einstök og að það sem hentar einum þurfi ekki endilega að henta öðrum.
Ég býð upp á höfuðbeina- og spjaldhryggjarmeðferðir (Cranio), þar sem unnið er með mjúkri og nærgætinni snertingu til að stuðla að slökun og vellíðan.
Einnig starfa ég með tíðnimeðferðir með búnaði frá Rayonex Biomedical GmbH og hef sótt sérhæfða þjálfun hjá fyrirtækinu í Þýskalandi. Ég er jafnframt ICC-kennari hjá Rayonex og tek þátt í fræðslu og kennslu um notkun búnaðarins.
Það sem mér þykir þó allra mikilvægast er að skapa öruggt og notalegt umhverfi þar sem þú getur slakað á, fundið fyrir nærgætni og fengið þá athygli sem þú átt skilið.
„Mín ósk er að þú finnir fyrir hlýju og skilningi í hvert sinn sem þú kemur til mín og að hér getir þú einfaldlega verið þú.“
Menntun og störf
- Eigandi Kyrrðar heilsuseturs
- Viðskiptafræðingur
- Umboðsaðili Rayonex á Íslandi
- Kennari hjá Rayonex Foundation
- Vottaður tíðnitæknir
- Advanced höfuðbeina- og spjaldhryggjarmeðferðaraðili
- Ritari í CranioSacral félagi Íslands
- Gjaldkeri í Bandalagi íslenskra græðara
Meðferðir í boði
Cranio – Höfuðbeina- og spjaldhryggjarmeðferð
60 mín · 18.000 kr.
Viðtal og greiningFyrsti tími í tíðnimeðferð
90 mín · 25.000 kr.
Tíðnimeðferð – eftirmeðferðEkki fyrsti tími
75 mín · 9.900 kr.
Blönduð meðferð – Cranio og tíðnimeðferðEkki fyrsti tími
75 mín · 25.000 kr.
Eftirfylgni – heimameðferðFyrir leigutaka PS 10
30 mín · 9.000 kr.
Verð og tímalengd samkvæmt bókunarsíðu á Noona.