Forsíða / Meðferðaraðilar / Lára Sverris
Lára Sverris
Lára Sverris
Áhugi minn á heilsu og heildrænni nálgun á vellíðan á sér djúpar rætur í minni eigin lífsreynslu. Ég hef sjálf kynnst því hvernig heilsufarslegar áskoranir geta breytt daglegu lífi, meðal annars vegna umhverfisveikinda og afleiðinga aftanákeyrslu.
Þessi reynsla vakti hjá mér enn sterkari löngun til að skilja líkamann betur og leita leiða til að styðja við vellíðan og lífsgæði. Hún hefur einnig kennt mér mikilvægi þolinmæði, þess að hlusta á eigin þarfir og að gefast ekki upp þótt leiðin sé stundum löng.
Í gegnum árin hef ég sótt fjölbreytt nám og þjálfun, bæði hér heima og erlendis. Höfuðbeina- og spjaldhryggjarmeðferð (Cranio) skipar stóran sess í starfi mínu.
Ég býð einnig upp á tíðnimeðferðir með búnaði frá Rayonex Biomedical GmbH og hef sótt sérhæfða þjálfun hjá fyrirtækinu í Þýskalandi. Ég er auk þess ICC-kennari hjá Rayonex og hef mikla ánægju af því að miðla þekkingu minni til annarra.
Í meðferðarstarfinu finnst mér sérstaklega dýrmætt að fá að kynnast fólki, heyra sögu þess og skapa aðstæður þar sem hægt er að staldra við og finna ró. Ég legg áherslu á að vinna af nærgætni, virða mörk hvers og eins og gefa hverri meðferð þann tíma og þá athygli sem hún þarfnast.
„Fyrir mér snýst meðferðarstarfið ekki aðeins um aðferðir og tækni, heldur fyrst og fremst um mannleg tengsl, traust og þá hlýju sem getur falist í því að einhver gefi sér tíma til að hlusta.“
Menntun og störf
- Eigandi Kyrrðar heilsuseturs
- Viðurkenndur bókari
- Umboðsaðili Rayonex á Íslandi
- Kennari hjá Rayonex Foundation
- Vottaður tíðnitæknir
- Advanced höfuðbeina- og spjaldhryggjarmeðferðaraðili
- RTT dáleiðari
- Formaður CranioSacral félags Íslands
- Í stjórn Bandalags íslenskra græðara
Meðferðir í boði
Cranio – Höfuðbeina- og spjaldhryggjarmeðferð
60 mín · 18.000 kr.
Viðtal og greining í Bioresonance / tíðnimeðferð
90 mín · 25.000 kr.
Bioresonance / tíðnimeðferð – eftirmeðferð
75 mín · 9.900 kr.
Tíðnimeðferð – orkuprógramm
40 mín · 14.000 kr.
Blönduð meðferð – Cranio og Bioresonance / tíðnimeðferð
75 mín · 25.000 kr.
Eftirfylgni – heimameðferð BioresonanceFyrir leigutaka PS 10
30 mín · 9.000 kr.
Verð og tímalengd samkvæmt bókunarsíðu á Noona.